Flýtilyklar
Fréttasafn
Fyrsta rafræna listsmiðja Listasafnsins komin í loftið
22.09.2021
Fyrsta rafræna listsmiðja Listasafnsins er komin í loftið hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum. Verkefnið felst í að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni listsmiðju á vegum Listasafnsins. Í samvinnu við sína nánustu fá börn tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk óháð stað og stund. Lögð er áhersla á að þátttakendur fái að sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem sett verður upp í Listasafninu. Frábært tilefni fyrir fjölskyldur að njóta samveru og skapa utan línulegrar dagskrár. Umsjón með fyrstu smiðjunni hefur Sigrún Björg Aradóttir, grafískur hönnuður.
Lesa meira
Fjölskylduleiðsögn og málþing á sunnudaginn
21.09.2021
Sunnudaginn 26. september kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu, en þá mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum og fullorðnum frá sýningunni Takmarkanir. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna.
Lesa meira
Tvær sýningar verða opnaðar á laugardaginn
21.09.2021
Laugardaginn 25. september kl. 15 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri, annars vegar sýning Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, Vísitasíur, og hins vegar sýning Ann Noël, Teikn og tákn. Á opnunardegi kl. 16 verður listamannaspjall við Bryndísi og Mark sem Æsa Sigurjónsdóttir, sýningarstjóri, stýrir.
Lesa meira
Fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins
17.09.2021
Þriðjudaginn 21. september kl. 17-17.40 heldur ljósmyndarinn Sigurður Mar fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Fegurðin í ófullkomleikanum. Þar fjallar hann um aftengingu ljósmyndarinnar við raunveruleikann, en Sigurður hefur glímt við þetta viðfangsefni undanfarin ár. Hann vinnur langt frá hinum ofurskörpu stafrænu myndgæðum, en blandar nútímatækni við aldagamlar aðferðir.
Lesa meira
List fyrir alla
14.09.2021
Vefsíðan listfyriralla.is fór í loftið á dögunum en henni er ætlað að miðla listviðburðum um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla er lögð á menningu fyrir börn og menningu með börnum.
Lesa meira
A! Gjörningahátíð fer fram í október
10.09.2021
A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri dagana 7. - 10. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í sjöunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði.
Lesa meira
Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn
08.09.2021
Sunnudaginn 12. september kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn um sýninguna Ferðagarpurinn Erró. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningunni og einstaka verkum. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í skemmtilegan leik um sýninguna.
Lesa meira
Gestalistamaður Listasafnsins sýnir í Deiglunni
31.08.2021
Bandaríska myndlistarkonan Jessica Tawczynski hefur dvalið í gestavinnustofu Listasafnsins undanfarnar vikur. Laugardaginn 4. september kl. 12 opnar hún sýningu í Deiglunni undir yfirskriftinni Lost At Sea / Týnd í Hafi þar sem hún sýnir afrakstur vinnu sinnar á Akureyri. Sýningunni líkur miðvikudaginn 8. september.
Lesa meira
Listamannaspjall með Ragnari Kjartanssyni
24.08.2021
Í tilefni af frumsýningu á nýju verki eftir Ragnar Kjartansson, Undirheimar Akureyrar, sem hann vann sérstaklega fyrir Listasafnið á Akureyri, verður boðið upp á listamannaspjall með Ragnari kl. 15 laugardaginn 28. ágúst. Stjórnandi er Hlynur Hallsson, safnstjóri. Listasafnið verður opið kl. 12-23 þennan sama dag og enginn aðgangseyrir.
Lesa meira
Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn
24.08.2021
Sunnudaginn 29. ágúst kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn um sýninguna Ferðagarpurinn Erró. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningunni og einstaka verkum. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í skemmtilegan leik um sýninguna.
Lesa meira
Leit

