A! GJÖRNINGAHÁTÍÐ
09.10.2025 – 11.10.2025
Salir 10 11
A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega, nú í ellefta sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Vídeólistahátíðarinnar Heim, Listnámsbrautar VMA og Myndlistarfélagsins á Akureyri. A! er eina hátíðin á Íslandi sem einbeitir sér eingöngu að gjörningalist.
Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum, dans- og leikhúsfólki. Á meðal þeirra sem komið hafa fram eru Sigurður Guðmundsson, Gjörningaklúbburinn, Dustin Harvey, Rúrí, Theatre Replacement, Hekla Björt Helgadóttir, Curver Thoroddsen, Brák Jónsdóttir, Tales Frey, Anna Richardsdóttir, HH Suersaq, Harpa Arnardóttir, Snorri Ásmundsson, Heather Sincavage, Olya Kroytor og Dýrfinna Benita Basalan.
Á hverju ári breytir hátíðin Akureyri í suðupott spennandi gjörninga. Ókeypis er inn á alla viðburði.
Verkefnisstjóri: Guðrún Þórsdóttir.