HULDA VILHJÁLMSDÓTTIR

HULDA VILHJÁLMSDÓTTIR
HULDUKONA /
HIDDEN LADY
25.01.2025 – 04.05.2025
Salur 01

„Málverkið þarf tíma, það fallega við málverkið er að það þarf tíma“
H.V.

Það er fáum gefið að dvelja langtímum saman í tilfinningum – sérstaklega þeim bláu – en kannski er bláminn góður, mjúkur og meyr og ekki eins erfiður og virðist í fyrstu. En slíkt verður aðeins skilið með upplifuninni af því að stoppa og dvelja í augnablikinu, í mjúkum kviksandi tilfinninga sem flestir óttast og telja að muni draga sig í hyldýpi eða hættu. Þeir eru nokkrir einstaklingarnir sem ná að dvelja í milliheimum, millitilfinningum með óttanum, sjálfsefanum, viðkvæmni og berskjöldun. Undirmeðvitundin les staðinn sem Hulda býr til í myndum sínum og  því er eitthvað við þær sem fær fólk til þess að vilja eignast þær. Myndunum fylgir ró, innsæi og tækifæri til að líta inn á við. Í okkar hraða samfélagi býr Hulda til stað sem sálin þekkir án þess að hugurinn skilji af hverju.

„Kannski er abstraktið tungumál huldufólksins“
H.V.

Það var jarðskjálfti, sem var táknið sem hún bað um þegar hún stóð á krossgötum og Náttúran, náttúruöflin, verur, trúin og innsæið eru og hafa ávallt verið uppspretta verkanna. Abstraktið er konan og náttúran. Konan, kvenleikinn sem er í náttúrunni, kötturinn og kvenleikinn í abstraktinu. Stundum renna þau í eitt stundum eru þau hlið við hlið, heimkynni hvors annars.

„En Huldukonan er líka pönkari“
H.V.

Hulda Vilhjálmsdóttir (f. 1971) útskrifaðist úr málaradeild Listaháskóla Íslands árið 2000 og hefur síðan haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum, bæði hér á landi og erlendis. Hún hlaut tilnefningu til Carnegie ART award og 2018 var hún tilnefnd til Íslensku Myndlistarverðlaunanna. Árið 2020 hlaut Hulda Tilberann, myndlistarverðlaun fyrir störf hennar í myndlist síðastliðna tvo áratugi.

Sýningin Huldukona sýnir breidd í verkum Huldu sem endurspeglast bæði í efni og efnistökum. Hún tengir saman tvívíð og þrívíð verk og sýnir samhengi efnistaka og efna, efna sem eru alvöru, steinleir og grófur strigi. í áferðinni er handbragðið, hendur listamannsins sem heiðrar efnið með formvali sínu. 

Sýningarstjóri: Hrafnhildur Gissurardóttir.

Málverk er þögul tónlist þar sem pensillinn er oft hjálp til að nota hljóðfærið.
H.V.