JAMES MERRY



JAMES MERRY
NODENS, SULIS & TARANIS 
30.08.2025 – 08.02.2026
Salur 12

James Merry er breskur myndlistarmaður sem búið hefur og starfað á Íslandi í áratug. Hann er þekktastur fyrir útsaumaðar grímur og sem tíður samstarfsmaður Bjarkar Guðmundsdóttur í sjónrænni framsetningu hennar. Hann hefur unnið með stofnunum og listamönnum eins og V&A safninu í London, Gucci, Royal School of Needlework, Tim Walker, Tilda Swinton og Iris Van Herpen.

Í Listasafninu á Akureyri verða til sýnis þrjár andlitsgrímur Merry, hver þeirra innblásin af ákveðnum rómversk-keltneskum fornleifafundi í Bretlandi. Verkin bjóða upp á samtímatúlkun á skarti valdsmanna frá járnöld – sem gefur innsýn í hversu heillaður Merry er af þessu sögutímabili og því svæði sem hann ólst upp á, í suðvesturhluta Bretlands. Sýnd verða upprunaleg verk auk mynda og skrásetningar á sköpunarferlinu.