HELGA PÁLEY FRIÐÞJÓFSDÓTTIR



HELGA PÁLEY FRIÐÞJÓFSDÓTTIR
Í FULLRI FJÖRU
22.03.2025 – 17.08.2025
Salur 12

„Eftir óveðrið skoluðust þræðir, glingur og gull upp í fjöru. Ævafornir fjársjóðir og nútímalegt rusl. Afmáð og nánast óþekkjanlegt, grafið í sandinn eða liggur í haugum. Þvílíkt og annað eins. Flokkun gengur vel, en fjaran verður aldrei söm.“

Helga Páley Friðþjófsdóttir (f. 1987) lauk BA-prófi frá Listaháskóla Íslands 2011 og er starfandi myndlistarmaður í Reykjavík. Eftir útskrift hefur hún haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. Verk hennar eru í eigu listasafna og einkaaðila víðs vegar í Evrópu.

Teikningin hefur lengi verið Helgu Páleyju hugleikin og skipað stóran sess í hennar listsköpun. Með teikningunni fálmar hún sig áfram með forvitnina að vopni og kortleggur sinn hugarheim. Hún gefur honum tíma til að gerjast, þangað til hlutirnir verða skýrari og sögur fæðast, sem færast með ýmsum leiðum yfir á strigann.