Tumi Magnússon
Áttir / Directions
Salir 01 - 03
9. febrúar - 28. apríl 2019
Tumi Magnússon (f. 1957) stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og AKI í Enschede, Hollandi.
Í byrjun ferilsins notaði Tumi fundna hluti, ljósmyndir, teikningar og 8 mm kvikmyndir í verk sín. Þetta leiddi hann til málverks í hlutbundnum stíl í byrjun 9. áratugarins. Á tíunda áratugnum þróaðist vinnan meira í átt að hugmyndalegu málverki og málverkainnsetningum heldur en málverki í hefðbundnum skilningi. Í lok áratugarins var vinna með tíma og rými orðin eitt aðalviðfangsefni verkanna. Tumi hélt þessum rannsóknum áfram á nýrri öld, en þá í formi innsetninga, ljósmyndaverka, og vídeó-/hljóðinnsetninga þar sem mynd og/eða hljóð er sett fram sem rýmisviðburður.
Sýningarstjóri: Hlynur Hallsson.