Flýtilyklar
Tvær sýningar verða opnaðar um helgina
Laugardaginn 8. maí kl. 12-17 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri: Nemendasýning Myndlistaskólans á Akureyri, Sjónmennt 2021, og útskriftarsýning nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA, Kompakt. Sýningarnar standa til 16. maí.
Sjónmennt 2021
Það dylst engum sem skoðar verk þeirra myndlistarmanna og hönnuða sem brautskráðir eru að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum Myndlistaskólans á Akureyri að þar eru á ferð sterkir einstaklingar sem taka fag sitt alvarlega og hagnýta sér til fulls þá reynslu sem þeir hafa öðlast.
Sjálfsskoðun er mikilvæg og gerir þá kröfu til nemandans að hann nái að yfirstíga nánd sína og birta viðfangsefni sitt á þann hátt að veki áhuga áhorfandans. Það getur verið snúið, en styrkleiki nemandans felst í hnitmiðaðri, myndrænni framsetningu verkanna og kunnáttu til að miðla henni á sem sterkastan hátt til áhorfandans. Myndræn framsetning verkanna er hluti af hugmyndinni og gegnir lykilhlutverki í að miðla áhrifunum til áhorfandans.
Nemendur:
Fagurlistadeild
Anna María Hjálmarsdóttir
Iðunn Lilja Sveinsdóttir
Listhönnun
Sigríður Halla Sigurðardóttir
Sigríður Dagný Þrastardóttir
Tereza Kociánová
Guðný María Nínudóttir
Heiðdís Buzgó
Kompakt
Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er sjöunda árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.
Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst.
Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með. Nemendur fá eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.
Nemendur:
Anamaria-Lorena Hagiu
Ásgerður Erla Einarsd. Strand
Ásta Þórunn Elvarsdóttir
Dagný Dís Bessadóttir
Emilía Fönn Hafsteinsdóttir
Erla Dís Reykjalín Ólafsdóttir
Inga Sigurrós Þórisdóttir
Ísak Lindi Aðalgeirsson
Ívar Bjarki Malmquist Hoblyn
Jónína Freyja Jónsdóttir
Katrín Helga Ómarsdóttir
Katarzyna Rymon-Lipinska
Katarzyna Walankiewicz
Margrét Lilja Álfgeirsdóttir
Sandra Dögg Kristjánsdóttir
Sara Berglind Stefánsdóttir
Sigrún Nattída Guðmundsdóttir
Veronika Adamonis