Flýtilyklar
Þriðjudagsfyrirlestur: Melanie Clemmons
Þriðjudaginn 8. febrúar kl. 17-17.40 heldur bandaríska myndlistarkonan Melanie Clemmons Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu undir yfirskriftinni Virtual Healing. Þar mun hún fjalla um listsköpun sína og ýmis atriði henni tengdri, s.s. list á alnetinu, trúarleg málefni, skaðlega og heilsubætandi möguleika tækninnar, sem og síbreytilegt eðli veruleikans. Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem fer fram á ensku.
Melanie Clemmons (hún/hán) er listamaður sem vinnur í nýmiðla og hefur áhuga á að endurhugsa tækni í átt að mjúkri og fagurri framtíð. Hún vinnur verk sín í mismunandi miðla, s.s. vídeó, netlist, innsetningar, þrívíddarprentaða skúlptúra og sýndarveruleika, og hafa verk hennar verið sýnd í alþjóðlegum gallerýum og söfnum. Clemmons ferðaðist með Pussy Riot og sýndi myndefni á fyrstu tónleikaferðalagi þeirra um Norður-Ameríku auk þess að hafa unnið að nokkrum tónlistarmyndböndum þeirra. Hún hefur einnig unnið með Zak Loyd síðan 2009, flutt lifandi myndefni á tónleikum og unnið innlimunarmyndband, laser og sýndarveruleikainnsetningar. Clemmons lauk BA námi í St. Edward háskólanum í Austin, Texas 2008 og MA gráðu frá University of Colorado, Boulder, 2015. Hún er lektor í stafrænum blendingsmiðlum við SMU í Dallas, Texas.
Fyrirlestraröðin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Menntaskólans á Akureyri og Gilfélagsins. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru: Ingunn Elísabet Hreinsdóttir, danskennari, Rósa Kristín Júlíusdóttir, myndlistarkona, Margrét Katrín Guttormsdóttir, vöruhönnuður, Tricycle Trauma - Jasmin Dasović og Ivana Pedljo gjörningalistamenn, Vala Fannell leikstjóri, og Aaron Michell, myndlistarmaður.
Leit

