Flýtilyklar
Jónsmessuhátíðin hefst í Listasafninu
Laugardaginn 27. júní kl. 12-12.45 opnar Stefán Elí Hauksson, sumarlistamaður Akureyrar, Jónsmessuhátíð 2020 með fjörugum tónleikum á þaki inngangs Listasafnsins. Kaffihúsið Kaffi & list mun opna kl. 11.30 fyrir gesti sem vilja mæta snemma og tryggja sér gott sæti fyrir utan. Enginn aðgangseyrir á Listasafnið í tilefni dagsins.
Dagskrá Jónsmessuhátíðar 27. - 28. júní 2020:
Laugardagur 27. júní
Kl. 12.00 – 12.45 Músík á þaki
Kl. 13.00 – 14.00 Mynd segir meira en þúsund orð
Kl. 13.00 – 14.30 Upp & niður með Gleránni
Kl. 14.00 – 16.00 Músík í sundi
Kl. 14.00 – 17.00 Hvíslið í djúpinu
Kl. 15.00 – 15.30 Listamannaspjall með Snorra Ásmundssyni
Kl. 15.00 – 15.45 Músík í búð
Kl. 16.00 – 17.00 Beyoncé í garðinum
Kl. 17.00 – 18.00 Músík & gleði
Kl. 18.00 – 20.00 Plötusnúður á bakkanum
Kl. 20.00 - 21.00 Vatna-Vellíðunar-Veisla með Flothettu (1/3)
Kl. 20.00 – 23.00 Opinn Kaktus
Kl. 20.00 – 23.00 Hvíslið í djúpinu
Kl. 20.00 – 23.00 Músík & með því
Kl. 21.00 – 22.30 Kvöldsigling
Kl. 22.30 – 23.00 Ópera & endur
Sunnudagur 28. júní
Kl. 8.30 – 9.00 Ljúfir sunnudagstónar
Kl. 9.00 - 10.00 Vatna-Vellíðunar-Veisla með Flothettu (2/3)
Kl. 10.00 – 10.45 Músík & morgunhressing
Kl. 11.00 - 12.00 Vatna-Vellíðunar-Veisla með Flothettu (3/3)
Kl. 11.00 – 12.00 Jónsmessa í Akureyrarkirkju
Kl. 12.00 – 12.45 Músík á þaki
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. Nánari dagskrá er einnig að finna á www.jonsmessuhatid.is.
Í tilefni Jónsmessuhátíðar:
Enginn aðgangseyrir á sýningar í Listasafninu á Akureyri. Opið til kl. 22.30 á laugardag í Sundlaug Akureyrar. Aðgangseyrir í sund. Sýningin Tónlistarbærinn Akureyri verður opin til kl. 22.00 á laugardag í Minjasafninu á Akureyri. Aðgangseyrir á safn.
Bakhjarl Jónsmessuhátíðar er Akureyrarbær. Samstarfsaðilar hátíðarinnar eru: Akureyrarstofa, Listasafnið á Akureyri, Iðnaðarsafnið, Sundlaug Akureyrar, Myndlistarfélagið, Nettó, Minjasafnið á Akureyri, Múlaberg Bistro & Bar, Flothetta, Lista- og menningarfélagið Kaktus, Kaffi & list, Húni II, Veitingahúsið Berlín, Akureyrarkirkja, Exton, Arctic Opera.
Vegna gildandi reglna í samkomubanni er Jónsmessuhátíðin ekki haldin í 24 klukkustundir 2020 líkt og undanfarin ár. Dagskrá hátíðarinnar stendur því frá kl. 12.00 til kl. 23.00 laugardaginn 27. júní og frá kl. 8.30 til kl. 12.45 sunnudaginn 28. júní.
Leit

