Flýtilyklar
Tónleikar japanska listamannsins Tomoo Nagai
Sunnudaginn 14. júní kl. 17 heldur japanski listamaðurinn Tomoo Nagai tónleika í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi.
Tomoo segist notar hljóð á svipaðan hátt og málari notar liti – til að fylla rými. „Hugmyndirnar sem tónlistin kallar fram eru skilgreindar út frá samspili sem verður til milli efnisins og rýmisins sem unnið er í hverju sinni. Tré, málmur, steinn, jörð, vatn… svo ótalmargir þættir í náttúrunni búa yfir ótrúlega hljómsterkri fegurð. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hlusta eftir þessari fegurð.“
Tomoo er staddur hér á landi í tengslum við sýningu Mireyu Samper, Endurvarp, í Listasafninu á Akureyri en hann tekur þátt í gjörningi á opnun sýningarinnar laugardaginn 13. júní kl. 15.30 og aftur sunnudaginn 14. júní kl. 14, ásamt japönsku gjörningarlistkonunni Kana Nakamura.
Eftir meistaranám í Listaháskólanum í Tókýó hefur Tomoo komið víða við innan tónlistarbransans s.s. í djassi, upptökum, kvikmyndatónlist, gjörningalist og hönnun hljóðfæra. Hann hannar sjálfur eða býr til meirihluta þeirra hljóðfæra sem hann notar.
Aðgangseyrir á tónleikana á sunnudag er kr. 1000.
Leit

