Flýtilyklar
Fyrsta leiðsögn ársins
Leiðsögn verður í Listasafninu á Akureyri í dag, fimmtudaginn 15. janúar, kl. 12.15 - 12.45 um yfirlitssýningu Elísabetar Geirmundsdóttur, Listakonan í Fjörunni, sem opnaði um síðustu helgi. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, og Ásgrímur Ágústsson, sonur Elísabetar, taka á móti gestum og fræða þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.
Elísabet Geirmundsdóttir var fjölhæf alþýðulistakona sem ef til vill er þekktust fyrir höggmyndir sínar þó hún gerði einnig málverk og teikningar auk þess að myndskreyta bækur, hanna hús og merki og semja ljóð og lög.
Sýningin er unnin í samvinnu við Minjasafnið á Akureyri og fjölskyldu Elísabetar. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson. Sýningin stendur til 8. mars og er opin þriðjudaga - sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.
Leit

