Frestur að renna út

Umsóknarfrestur um styrki fyrir verkefni á Listasumar 2016 rennur út á miðnætti í dag, þriðjudaginn 10. maí.  Þeim sem hafa áhuga á að taka þá í Listasumri gefst kostur á að sækja um verkefnastyrki og eru í boði tveir 300 þúsund króna styrkir og fjórir 100 þúsund króna styrkir, auk þess sem hægt er að sækja um aðstöðu fyrir viðburði í Sal Myndlistafélagsins í Listagilinu. Listasumar hefst helgina 15. – 17. júlí og lýkur á Akureyrarvöku 26. - 28. ágúst.

Umsækjendur þurfa að skila verkefnalýsingu og upplýsingum um umsækjendur á netfangið listasumar@listak.is.

Listafólk og skipuleggjendur menningarviðburða á svæðinu eru einnig hvattir til að vera í sambandi við Listasumar og senda tölvupóst á netfangið listasumar@listak.is til að koma viðburðum á framfæri í kynningarmiðlum Listasumars. Hægt er að fylgjast með á heimasíðu Listasumars og á Facebooksíðu Listasumars.