Flýtilyklar
Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn
21.03.2022
Sunnudaginn 27. mars kl. 11-12 verður fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá samsýningu skólabarna og myndlistarmannanna Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur og Helga Þorgils Friðjónssonar, Sköpun bernskunnar 2022.
Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í smiðju og að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna. Aðgangur ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.
Leit

