Þriðjudagsfyrirlestur: Margeir Dire - Endalaus innblástur

Þriðjudagsfyrirlestur: Margeir Dire - Endalaus innblástur
Margeir Dire.

Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 17 heldur myndlistarmaðurinn Margeir Dire fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Endalaus innblástur.  Á fyrirlestrinum veltir Margeir fyrir sér þeirri áráttu sinni að búa eitthvað til úr öllu því sem hann hefur upplifað. Í kjölfarið fer hann yfir sköpun sína í gegnum tíðina og ástæður hennar.

Margeir Dire nam í Myndlistaskólanum á Akureyri, Lahti Institude of Fine Arts í Finnlandi og Instituto Europeo di Design í Barcelona. Hann er þekktur fyrir myndsköpun í mismunandi miðla svo sem vegglistaverk, strigamálverk, teikningar, video, tónlist, hönnun og listræna stjórnun. Margeir hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í allskyns samsýningum og samstarfsverkefnum. 

Þetta er fimmti Þriðjudagsfyrirlestur ársins og sem fyrr fara þeir fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Guðmundur Heiðar Frímannsson, Elísabet Ásgrímsdóttir, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð, Jón Páll Eyjólfsson og Hildur Friðriksdóttir.