Opið alla páskahátíðina

Listasafnið á Akureyri verður að venju opið alla páskahátíðina á hefðbundnum opnunartíma kl. 12-17, en nú standa yfir átta sýningar í tólf sölum safnsins.

Laugardaginn 19. apríl kl. 11-12 verður boðið upp fjölskyldujóga undir yfirskriftinni Á haus í Listasafninu. Viðburðurinn er hluti af Barnamenningarhátíð og er ókeypis aðgangur, en skráning nauðsynleg á heida@listak.is. Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, jógakennari og hljóðheilari, býður þá fjölskyldur velkomnar í samverustund þar sem hún fléttar saman fjölskyldujóga og skynjun í núvitund með listrænu ívafi. 

Yfirstandandi sýningar:

Salur 01
Hulda Vilhjálmsdóttir – Huldukona
Salir 02 04
Kristján Guðmundsson – Átta ætingar
Salir 03 05
Þórður Hans Baldursson og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir – Dömur mínar og herrar
Salur 07
Valin verk fyrir sköpun og fræðslu – Margskonar I
Salur 08
Átthagamálverkið: Á ferð um um Norðausturland liðinnar aldar
Salur 09
Emilie Palle Holm – Brotinn vefur
Salir 10 11
Sköpun bernskunnar 2025
Salur 12
Helga Páley Friðþjófsdóttir – Í fullri fjöru