A! Gjörningahátíð hafin

A! Gjörningahátíð hafin
KGB þríeykið.

A! Gjörningahátíð hófst í gærkvöldi í Listasafninu á Akureyri með gjörningi KGB þríeykisins, en það skipa Kristján Helgason, Birgir Sigurðsson og Guðmundur Steinn Gunnarsson. Að þeim gjörningi loknum tóku við gjörningar Vénýjar Skúladóttur, Ashima Prakash og Évu Berki. A! er þriggja daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega, nú í tíunda sinn og stendur fram á laugardagskvöld. Ókeypis er inn á alla viðburði. Hátíðin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi þar sem einungis er um gjörningalist að ræða úr öllum listgreinum. Dagskrá hátíðarinnar má sjá HÉR.

Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. 

Þátttakendur eru: Magnús Helgason, Hekla Björt Helgadóttir, Fríða Karlsdóttir, Dustin Scott Harvey, Ashima Prakesh og Éva Berki, Véný Skúladóttir, Christalena Hughmanick, Clare Almere, Henrik Koppen, Kristján Helgason, Guðmundur Steinn Gunnarsson og Birgir Sigurðsson, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, Kraftverk (Anna Kolfinna Kuran, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Elísabet Birta Sveinsdóttir, Gígja Jónsdóttir og Guðrún Selma Sigurjónsdóttir), Heather Sincavage og Sarah Hammeken.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Vídeólistahátíðarinnar Heim, Einkasafnsins, Gilfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri.