Listamannaspjall og sýningalok

Í tilefni af síðustu dögum sýningar Guðnýjar Kristmannsdóttur, Kveikja, verður boðið upp á listamannaspjall með Guðnýju næstkomandi laugardag, 25. maí, kl. 15. Stjórnandi er Hlynur Hallsson, safnstjóri. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag, 26. maí, en þá mun einnig ljúka einkasýningum Sigurðar Atla Sigurðssonar, Sena, og Alexanders Steig, Steinvölur Eyjafjarðar.