Flýtilyklar
Sýningu lýkur
08.11.2024
Framundan eru síðustu dagar sýningarinnar Safn: Hildigunnur Birgisdóttir og verk úr safneign, en sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag.
Á sýningunni vinna listakonan Hildigunnur Birgisdóttir og sýningarstjórinn Jón B. K. Ransu með safneign Listasafnsins. Hildigunnur er þekkt fyrir að nota söfnun og skrásetningu sem hluta af listsköpunarferli sínu. Safn, í þessum skilningi, hefur því tvöfalda merkingu: annars vegar er það eignin sem Listasafnið á Akureyri hefur sankað að sér og hins vegar listaverk eftir Hildigunni Birgisdóttur.