SAMSÝNING
SKÖPUN BERNSKUNNAR 2025
22.02.2025 – 21.04.2025
Salir 10 11
Þetta er í tólfta sinn sem sýning undir heitinu Sköpun bernskunnar er sett upp í Listasafninu á Akureyri. Markmið sýningarinnar er að efla safnfræðslu og gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn ásamt Minjasafninu á Akureyri / Leikfangahúsinu.
Í ár var myndhöggvaranum Sólveigu Baldursdóttur boðin þátttaka í verkefninu. Hún nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1980-1982 og við skúlptúrdeild Det Fynske Kunstakademi í Danmörku, þaðan sem hún útskrifaðist 1987. Hún flutti til Carrara á Ítalíu 1990 og vann þar að list sinni við Stúdio Niccoli næstu 4 árin. Sólveig rak vinnustofu á Akureyri 1995-2001 og vann að ýmsum útilistaverkum sem og sýningum hér heima og erlendis.
Einkasýning Sólveigar, Augnablik – til baka, var opnuð í Listasafninu í nóvember 2024, en nú hefur henni verið umbreytt í nýja: Sköpun bernskunnar 2025. Hér má sjá skúlptúra Sólveigar í nýju samhengi og í áhugaverðu samtali við verk barnanna.
Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Hólmasól og grunnskólarnir Giljaskóli, Hlíðarskóli, Lundarskóli, Oddeyrarskóli og Síðuskóli. Í vetur komu skólabörnin ásamt kennara í Listasafnið og unnu verk fyrir sýninguna undir handleiðslu listamannsins. Þar fengu þau tækifæri til að kynnast Sólveigu og nota skúlptúra hennar sem innblástur í eigin sköpun.
Sýningarstjóri: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.