Oliver van den Berg
Af svölunum
31.08.2024 – 10.08.2025
Salur 06
Oliver van den Berg (f. 1967) hefur getið sér góðan orðstír með skúlptúrum og innsetningum byggðum á tæknilegum tólum, s.s. flugritum, stjörnuvörpum, myndavélum og hljóðnemum. Saga tækninnar á tuttugustu öld, sem og dægurmenning nútímans og spurningar er varða félagslega raunhæfa samgöngumáta, eru þættir sem koma fram í verkum hans sem hornsteinar félagslegrar samheldni.
Þó að þessi verk virðist innihalda eftirlíkingar af raunverulegum hlutum, eru þeir raunar gerviblendingar sem flakka á milli þess upprunalega og eftirlíkingarinnar. Það er ekki fyrr en endurgerðin er ígrunduð sem við gerum okkur grein fyrir hversu kirfilega flækt við erum í slíka hluti; vensl sem við felum í skáldskap og frásögnum svo hægt sé að þykjast hafa vald yfir þeim. Í strípuðum einfaldleika sínum er þetta hins vegar ennþá hulin ráðgáta.
Oliver van den Berg er frá Essen í Þýskalandi, en býr nú og starfar í Berlín. Fyrir þessa sýningu mun hann skapa sérsniðin verk fyrir svalirnar á Listasafninu.